Upplýsingar um námskeið

Reykjavík MMA býður upp á 6 vikna byrjenda námskeið í Muay Thai og hefst 6. september.

Verð á námskeiðið er 29.900.

Að námsskeiði loknu geta nemendur mætt í framhaldstíma í Muay Thai og Kickboxi samkvæmt stundatöflu RVKMMA.

Kennt er á þriðjudögum og fimmtudögum kl 19:10 og er hver tími 60 mínútur á lengd

Markmið með námskeiðinu

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði í Muay Thai með það að markmiði að veita nemendum grunnskilning á tækni í íþróttinni. Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur, óháð fyrri reynslu.

Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja stíga út fyrir þægindaramman og prufa eitthvað nýtt, læra undirstöðu atriði í Muay Thai og á sama tíma svitna og hafa gaman undir öruggri handleiðslu reyndra þjálfara.

Þjálfari

Þjálfari námsskeiðssins er Sergey Kuliaba.

Sergey kom til Íslands frá Úkraínu í kjölfar átakanna sem brutust út þar fyrr á árinu.

Það er mikill fengur í Sergey sem þjálfara hjá RVK MMA þar sem að hann hefur helgað líf sitt íþróttinni nánast algjörlega og keppt á stærstu sviðum heims við nöfn á borð við Buakaw og Superbon.

Hann á að baki heimsmeistaratitla og var meðlimur Úkraínska landsliðsins til margra ára.

Sergey er einnig með Masters gráðu í Íþróttafræðum og hefur starfað við þjálfun í mörg ár.


Gott að vita 

  1. Verð fyrir námskeið er 29.900 kr. Námskeið fæst ekki endurgreitt eftir skráningu. Ef eitthvað kemur uppá þá er hægt að senda okkur póst og þú getur átt námskeiðið inni. Email: Rvkmma@rvkmma.is

  2.  Á námskeiðinu er tekið mið af aldri og getu hvers og eins og fer hver á sínum hraða.

  3. Mælst er með að fólk mæti í venjulegum íþróttafatnaði án rennilása. Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa á æfingar.

  4. Box hanskar og legghlífar eru ekki nauðsynlegar á námskeiðinu en gott að eiga þær ef viðkomandi vill halda áfram að námskeiði loknu. Box hanska og legghlífar er hægt að versla hjá okkur.

  5. Ef áhugi vaknar og þú vilt halda áfram að námskeiði loknu þá er hægt að skrá sig í áskrift og mæta í framhaldstíma bæði í Muay Thai og Kickboxi.

  6. Innifalið í verðinu er aðgangur að þrektímunum okkar 5LotuForm sem eru 11 sinnum í viku.