Upplýsingar um námskeið
Reykjavík MMA býður upp á byrjenda námskeið í Kickbox daganna 17-20.Október.
Verð á námskeiðið er 19.990
Fjögurra daga námskeið sem verður frá mánudegi til fimmtudags. 1.5 tíma í senn.
Innifalið í verði námskeiðsins er 1 vika í Rvkmma eftir að grunnnámskeiði lýkur þar sem iðkendur geta mætt í Kickbox2 og Fimmlotuform (Þrektímar)
Dagskráin:
Alla daga frá mánudegi til fimmtudags er mæting á slaginu 20:10 og æfingu lokið 21:40.
Markmið með námskeiðinu:
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði í Kickbox með það að markmiði að veita nemendum grunnskilning á tækni í íþróttinni. Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur, óháð fyrri reynslu.
Þeir sem hafa þreytt námskeiðið geta svo mætt í framhaldstíma í Kickbox samkvæmt stundatöflu hjá RVK MMA.
Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja stíga út fyrir þægindaramman og prufa eitthvað nýtt, læra undirstöðu atriði í Kickbox og á sama tíma svitna og hafa gaman undir öruggri handleiðslu reyndra þjálfara.
Gott að vita
Verð fyrir námskeið er 19.900 kr. Námskeið fæst ekki endurgreitt eftir skráningu. Ef eitthvað kemur uppá þá er hægt að senda okkur póst og þú getur átt námskeiðið inni. Email: Rvkmma@rvkmma.is
Á námskeiðinu er tekið mið af aldri og getu hvers og eins og fer hver á sínum hraða.
Mælst er með að fólk mæti í venjulegum íþróttafatnaði án rennilása. Gott er að hafa meðferðist vatnsbrúsa á æfingar.
Box hanskar og legghlífar eru ekki nauðsynlegar á námskeiðinu en gott að eiga þær ef viðkomandi vill halda áfram að námskeiði loknu. Box hanskar og legghlífar fást hjá okkur. Hanskar fást á 13.900 kr. og legghlífar á 13.995 kr.
Ef áhugi vaknar og þú vilt halda áfram að námskeiði loknu þá er hægt að skrá sig í áskrift og mæta í framhaldstímana okkar (Kickbox 2) sem eru mánudögum,miðvikudögum,föstudögum og laugardögum.
Innifalið í verðinu er aðgangur að þrektímunum okkar 5LotuForm sem eru 10 sinnum í viku.
Þjálfarar eru þeir:
Haraldur Arnason.
Remek Duda Maríusson.