Vigtun byrjar kl 10:00 - 10:45 og fyrstu viðureignirnar byrja 11:00

Það má gera ráð fyrir að dagurinn klárist milli 16:00 - 17:00

Training Day 6. Apríl 2024

Training Day er fullkominn dagur fyrir iðkendur sem vilja sækja sér keppnisreynslu inn í öruggu umhverfi. Þetta er sérstaklega gott fyrir nýliða sem vilja stíga inn í búrið og prófa að berjast fyrir framan áhorfendur. Hörð högg eru ekki leyfileg, því ætti hver þátttakandi að geta auðveldlega keppt oft yfir daginn í þeim greinum sem viðkomandi kýs.

ATH. ÞÁTTAKENDUR ÞURFA AÐ TILHEYRA FÉLAGI.

Á training day er controled aggresion sem þýðir að ef annar æfingarfélaginn fer of harkalega að þá mun dómarinn inn í búrinu stíga á milli, stöðva sparrið og gefa viðvörun. Ef að aðilinn brýtur svo af sér í annað skiptið mun sparrið vera stöðvað.

Skráning

Þátttakendur skrá sig til leiks í gegnum sportabler.

https://www.abler.io/shop/rvkmma/1

Þeir sem eru ekki orðnir 18 ára þurfa að senda tölvupóst á jon@rvkmma.is

Þegar þátttakendur eru búnir að skrá sig á sportabler, þá fá þeir sendan tölvupóst þar sem þeir eru beðnir um að gefa upp nánari upplýsingar um sig þ.m.t. líkamsþyngt og í hverju þeir vilja taka þátt í.

Það er leyfilegt að taka þátt í fleiri en einni grein yfir daginn.


Getustig

Keppendum er raðað í flokka eftir getustigi og ættu allir að geta tekið þátt!

Level 1: Þeir þátttakendur sem hafa æft í minna en 6 mánuði.

Level 2: Þeir þátttakendur sem hafa æft í minna en 1 ár.

Level 3: Þeir sem hafa mætt á Training day áður, en hafa enga reynslu í bardögum.

Level 4: Þer sem hafa keppnisreynslu eða hafa barist á sýningu.


Reglur

Submission grappling

5 mínútur, sub only
Engir snúandi lásar á lappir, hrygg eða höfuð.
jafntefli ef ekkert sub.

Kickbox - Reglur og búnaður:

Tvær 3 mínútna lotur.
Engar spinning árasir.
Legghlífar og 14 únsu boxhanskar.
Hjálmur er leyfilegur en ekki nauðsynlegur.

Undir 16 ára, engin höfuðhögg.

MMA - Reglur og Búnaður:

Tvær 3 mínútna lotur.
Engar spinning árasir
Bara beinir fótalásar
Enginn slömm
Enginn högg í höfuð í gólfinu.

Undir 16 ára, engin höfuðhögg

Box - Reglur og Búnaður

Tvær 3 mínútna lotur.
14 únsu boxhanskar.
Hjálmur er nauðsýnlegur fyrir keppendur yngri en 18.