Upplýsingar um námskeið

Reykjavík MMA býður upp á grunnnámskeið í hnefaleikum 8. október.

Námskeiðið er fjórar vikur og fer kennslan fram þriðjudaga og fimmtudaga kl 20:15

Verð á námskeiðið er 29.900kr


Markmið með námskeiðinu:

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnatriði í box með það að markmiði að veita nemendum grunnskilning á tækni í íþróttinni. Námskeiðið hentar vel fyrir byrjendur, óháð fyrri reynslu en getur einnig hentað þeim sem hafa ekki mætt í langan tíma eða vilja fara betur í grunninn.

Þeir sem hafa þreytt námskeiðið geta svo mætt í framhaldstíma í boxi samkvæmt stundatöflu hjá RVK MMA.

Námskeiðið er tilvalið fyrir þá sem vilja stíga út fyrir þægindaramman og prufa eitthvað nýtt, læra undirstöðu atriði í boxi og á sama tíma svitna og hafa gaman undir öruggri handleiðslu reyndra þjálfara.


 


Gott að vita 

  1. Verð fyrir námskeið er 29.900 kr. Námskeið fæst ekki endurgreitt eftir skráningu. Ef eitthvað kemur uppá þá er hægt að senda okkur póst og þú getur átt námskeiðið inni. Email: Rvkmma@rvkmma.is

  2. Á námskeiðinu er tekið mið af aldri og getu hvers og eins og fer hver á sínum hraða.

  3. Mælst er til að fólk mæti í venjulegum íþróttafatnaði án rennilása. Gott er að hafa meðferðis vatnsbrúsa á æfingar.

  4. Box hanskar eru ekki nauðsynlegir á námskeiðinu en gott að eiga þá ef viðkomandi vill halda áfram að námskeiði loknu. Hægt að er að versla hanska í móttökunni hjá okkur.